top of page

Sögustaðir

Á nokkrum stöðum í Skagafirði geturðu kynnst einum róstursamasta kafla Íslandssögunnar. Hann var á 13. öld, Sturlungaöld, og einkenndist af grimmilegum átökum valdaætta í landinu. Sturlungar börðust við Haukdæli af Suðurlandi og Ásbirninga í Skagafirði. Háðir voru mannskæðir bardagar á Örlygsstöðum og Haugsnesi og unnin níðingsverk, eins og þegar kveikt var í bænum á Flugumýri og menn brenndir inni.

 

Á mörgum þeim stöðum sem hér eru nefndir er búið að koma upp skiltum sem veita upplýsingar um atburðina sem þar urðu. Þú getur líka keypt sögukort sem leiðir þig á milli staða og veitir upplýsingar um hvernig staðirnir tengjast atburðarás sögunnar.

​

Myndin er af sögubók fyrir börn með myndum sem má lita. Litabók þessi dregur upp myndir af persónum, viðburðum og sögustöðum í Skagafirði sem urðu á slóð Sturlunga. Bókin fæst í Kakalaskála og á fleiri stöðum í Skagafirði. 

 

Ef þú vilt kynnast Sturlungaslóðinni betur geturðu farið inn á vefinn Lifandi landslag og hlustað á sögubrot frá tímum Ásbirninga og Sturlunga sem tengjast ýmsum sögustöðum í Skagafirði. Veldu undirsíðuna Íslendingasögur og þá geturðu vafrað á milli staða á landakorti.

Litabok.jpg

Texti um sögustaði er saminn af Sigríði Sigurðardóttur, Kristínu Jónsdóttur og Söru R. Valdimarsdóttur. Þær voru meðal stofnenda í félaginu á Sturlungaslóð og stýrðu því til 2021, eða þar til það því var breytt í hollvinasamtök Kakalaskála. Hönnuður merkis er Þuríður Harpa Sigurðardóttir. Njótið vel!

Sturlungaslod.png
bottom of page