top of page

Sturlunga saga

Sturlunga saga er samstæða nokkurra frásagna frá 12. og 13. öld sem flestar eru ritaðar af samtíðarfólki. Aðalhöfundur er söguritarinn Sturla Þórðarson. Á þessari heimasíðu er dregið fram hvernig atburðir í Skagafirði tengjast sögunum og hvaða staðir koma helst við þessa mögnuðu sögu.

Sögusviðið er Skagafjörður á 13. öld.  Hafa skal í huga að í Sturlunga sögu er brugðið upp fremur einsleitri samfélagsmynd, sem miðast fyrst og fremst við tilgang og þarfir þeirra sem skrifuðu. Til eru aðrar ritaðar heimildir sem greina frá ástandi mála á þessum tíma, en megingildi Sturlungu liggur í lýsingu á stjórnmála- og hernaðarátökum tímabilsins þar sem fjallað er um forystuhóp samfélagsins eða yfirstétt og átök á milli valdaætta. Aðrar þjóðfélagsstéttir koma fyrst og fremst fram í aukahlutverkum í verkinu.

 

 

Sturlungaslod.png
bottom of page