top of page

Hvers vegna er Sturlungaslóð í Skagafirði?

Sturlungaslod.png

Margir staðir í Skagafirði tengjast sögusviði í Sturlungasögu og margir Skagfirðingar velta sögunni fyrir sér við ótal tækifæri. Í upphafi þess tíma sem sagan fjallar um, á 13. öld, naut fólk í Skagafirði styrkrar stjórnar goðorðsmanna af ætt Ásbirninga. Í upphafi aldarinnar var þeirra valdamestur skáldið Kolbeinn Tumason á Víðimýri.

Árið 2008, 800 árum eftir að Kolbeinn skáld féll í valinn, var kallaður saman hópur fólks sem setti á fót félag sem kallað var Á Sturlungaslóð. Ásetningur þess var að skoða hvort og hvernig hægt væri að minnast þeirra dramatísku og afdrifaríku átaka sem urðu á Sturlungaöld í Skagafirði á þeim stöðum þar sem þeir gerðust. Úr varð að flétta þá sama í slóð þannig að fólk gæti farið að vild á milli þeirra. Þannig var sett upp einskonar „lifandi landakort“ sem tók mið af sögunni. Ástæða þess að valið varð að kenna slóðina við Sturlungaætt fremur en ætt Ásbirninga var sú að það voru yfirleitt Sturlungar sem fóru hamförum í Skagafirði og Ásbirningar reyndu að verjast þeim. Slóð Sturlunga um Skagafjörð var blóði drifin og hræðileg upplifun þess samferðafólks sem þá lifði. Þeir réðust inn í ríki Ásbirninganna með það að markmiði að ná Skagafirði á sitt vald og margir þeir sem mest létu voru tengdir Ásbirningum fjölskylduböndum. Frændur reyndust frændum verstir. 

Þrátt fyrir það hefur Sturlungaöld yfir sér ákveðinn ljóma og oft er vitnað til þeirra sem þá voru uppi og þess sem gerðist. Af því má enn læra margt. Á vefsíðunni Lifandi landslag er hægt er að rekja sig eftir þessari slóð - Á Sturlungaslóð - og hlusta á hvað gerðist á hverjum stað. Velja þarf undirsíðuna Íslendingasögur til að komast inn á slóðina.

Svo sem sést á skiltum sem félagið á Sturlungaslóð hefur látið setja upp við akstursleiðir inn í Skagafjörð eru allir gestir Skagafjarðar boðnir velkomnir á magnaðar söguslóðir. Hönnuður merkisins er Þuríður Harpa Sigurðardóttir.

Höfundar texta: Sigríður Sigurðardóttir, Kristín Jónsdóttir, Sara R. Valdimarsdóttir.

bottom of page